Innskráning

07.05.2013 - 17:29

Ný grein: kvikasilfursmengun ógnar melrökkum við sjávarsíðuna

úr greininni
úr greininni
Gerður var samanburður á þremur stofnum melrakka frá ólíkum búsvæðum. Kvikasilfur er eitt þeirra efna sem safnast upp í fæðukeðjunni og vísindamennirnir athuguðu því uppruna fæðunnar sem refirnir voru að éta. Refirnir á hinni rússnesku Commander eyju við Mednyi eyjaklasann lifa nær eingöngu á sjófuglum og selshræjum. Á Íslandi lifa refir við sjávarsíðuna að mestu á sjófugli og öðrum hafrænum fæðutegundum. Innanlands lifa refir að mestu á nagdýrum og fugli af landrænum uppruna. Mismunandi magn kvikasilfurs fannst í sýnum af þessum þremur búsvæðum. Mikið magn kvikasilfurs mældist í refum sem lifa á hafrænni fæðu, bæði á Íslandi og Mednyi....
Meira
25.04.2013 - 11:20

Sumarið hefst í setrinu

Nú höfum við opið á setrinu á hverjum degi.  Við höfum opið frá 10-17 á safninu og á kaffihúsinu. 
Á kaffihúsinu verðum við með orkumikla grænmetissúpu og nýbakað brauð í hádeginu, 1000 kr.
Við tökum fagnandi á móti hópum, fundahaldi á loftinu og vettfangsferðum endilega bókið ykkur í síma 8628219.
Síða 1 af 107
Vefumsjón