Rebbakaffi er notalegt lítið kaffihús í húsi melrakkaseturs.
Hægt er að sitja inni eða úti á palli með drykki og léttar veitingar. Á Rebbakaffi er líka þráðlaust internet. Þægilegt er að tilla sér með kaffibolla, skipuleggja ferðalagið eða bara njóta útsýnisins og náttúrufegurðar Álftafjarðar.