06.01.2012 - 11:57
Minningarsjóður Páls Hersteinssonar
Eins og áður hefur komið
fram á heimasíðunni, lést Páll Hersteinsson, hugmyndasmiður og verndari
Melrakkasetursins, í október 2011.
Páll var virtur og afkastamikill fræðimaður, bæði á íslenskri og erlendri grund. Rannsóknir hans á tófunni, sem hófust á 8. áratug sl. aldar, stóðu yfir í rúm 32 ár og hafa leitt í ljós mikilvægar upplýsingar um líffræði og stofnvistfræði tegundarinnar á Íslandi og erlendis.
Kollegar Páls og vinir í norður Noregi söfnuðu dágóðri upphæð sem þau hafa ánafnað Melrakkasetrinu í minningu Páls. Við erum stolt og þakklát fyrir framlagið og munum gera okkar besta til að halda uppi nafni og starfi Páls með rannsóknum á melrakkanum á Íslandi.
Fjárhæðin, sem norsku vísindamennirnir söfnuðu, hefur verið færð inn á sérstakan reikning sem stofnaður hefur verið. Hugmyndin er að stofna sjóð í nafni Páls, sem opin verður fyrir framlögum. Markmið sjóðsins verður að styðja við áframhaldandi rannsóknir á tófunni og efla alþjóðlegt samstarf á vettvangi tófurannsókna. Þeir sem leggja fé inn á reikninginn og vilja fá staðfestingu eða láta nafns síns getið eru beðnir um að senda tölvupóst til melrakki[@]melrakki.is
Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn
f.h. Melrakkaseturs Íslands
Ester Rut Unnsteinsdóttir
Frekari upplýsingar.
MINNINGASJÓÐUR PÁLS HERSTEINSSONAR
Reikningsnr: 0154-15-200526
Kennitala : 660907-1060