11.07.2011 - 17:21

Selatalningin mikla

Sunnudaginn 17. Júlí verður Selatalningin mikla haldin í fimmta sinn á vegum
Selaseturs  Íslands. Við hvetjum heimamenn sem og aðkomumenn að taka þátt!

Upprunalega voru bara taldir selir á Vatnsnesinu en þar sem áhugi og þátttaka hefur aukist á milli ára er síðan 2009 allt Heggstaðarnesið talið líka. Svæðið sem talið er á núna er um 100 km langt, en skipt í mörg misstór svæði og eru síðan öll svæðin talin á sama tíma.  Flestir ættu að geta fundið sér svæði við sitt hæfi, hvort sem á við fjölskyldufólk í leit að léttri göngu í fjörunni eða íþróttagarpar að leita að erfiðri gönguferð (tekið skal fram að talningin hentar ekki börn undir 5 ára og börn mega bara taka þátt í fylgd forráðamanna). Stystu svæðin verða u.þ.b. 2 km löng og þau lengstu um 7 km.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku sína í síðasti lagi fimmtudaginn 14. júlí.
Til að skrá sig og fá nánari upplýsingar um tímasetningu og fleira má hafa
samband í netfang  <mailto:sandra@veidimal.is> sandra@veidimal.is eða í síma
451-2345

Ath! Talningin hentar ekki börnum undir 5 ára og börn mega bara taka þátt í
fylgd forráðamanna

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón