09.12.2010 - 17:09
Skráningarblað fyrir hlutafé í Melrakkasetri Íslands ehf.
Hér er hægt að ná sér í skráningarblað og gerast hlutafélagi í Melrakkasetri Íslands ehf.
Félagið var stofnað í Súðavík 15. september 2007 og voru stofnfélagar 42, einstaklingar, sveitafélög og fyrirtæki í héraði.
Melrakkasetur Íslands ehf er sjálfseignarfélag og rennur allur ágóði félagsins í starfsemina. Samkvæmt stofnsamþykktum félagsins er ekki hægt að fá greiddan arð en að sama skapi er heldur ekki greiddur skattur af hlutafjáreign.
Á aðalfundi félagsins í maí 2010 var ákveðið að hlutafé félagsins verði hækkað upp í 5 milljónir. Hluturinn er á 10.000,-kr og er hægt að skrá sig með því að prenta út eyðublaðið, fylla það út og senda undirritað til:
Melrakkasetur Íslands
Eyrardal - 420 Súðavík
Hlutafélagar sem greitt hafa fyrir sinn hlut fá sent skjal því til staðfestingar. Einnig geta menn keypt hlut í nafni annara og er þá gefið upp nafn þess sem verður skráður. Þetta er nokkuð vinsæl og hentug gjöf enda gott málefni á ferðinni.