05.09.2011 - 10:13

Melrakkasetur í september

Strákur ađ vestan: Ágúst Atlason
Strákur ađ vestan: Ágúst Atlason
Minnum á frábæran viðburð í september:
 
24. September, laugardagur, kl. 20.00 lýkur Haustleikferð Kómedíuleikhússins í Eyrardal
 - tvö leikrit fyrir eitt: aðgangur 1.900,- kr. Veitingasala á staðnum - húsið opnar kl. 19 og boðið er upp á súpu með nýbökuðu brauði á aðeins 900,- kr.

Einnig fæst kaffi og heimabakað góðgæti (bláberjapæja, vöfflur) o.fl.



Sýningar kvöldsins:


I) Jón Sigurðsson strákur að vestan


II) Bjarni á Fönix


 


MIÐAPANTANIR Í SÍMA 456 4922 -


 


25. september, sunnudagur, kl. 12-16 verður Flóamarkaður í Eyrardal / Flea market in Súðavík !!

Í tilefni þess að haustið er komið ætlum við að halda Flóamarkað
og handverkssölu Í Melrakkasetrinu í Súðavík

 


Rebbakaffi verður opið, boðið upp á kaffi, bláberjapæju, vöfflur og súkkulaðiköku ...


 


Allir sem vilja selja eitthvað geta komið sér fyrir á loftinu og lokkað til sín áhugasama kaupendur
- fyrstir koma, fyrstir fá pláss, húsið opnar kl. 11.30 !!



Móri og Minni verða á sínum stað og refahirðir sér um að fóðra þá á hverjum degi.

Í nóvember verður húsinu lokað vegna þess að þá verður haldið áfram með endurbætur þess. Fyrirhugað er að halda upp á aðventuna eins og í fyrra og verður sagt frá því síðar.


...
Meira
01.09.2011 - 13:55

Listasumar og Bláberjahátíđ

Olympíuliđiđ
Olympíuliđiđ
« 1 af 9 »
Það má segja að fjörið hafi dunað í Melrakkasetri í ágúst enda voru tónlistarviðburðir nánast um hverja helgi. Í júlí héldum við tónlistarveislu, í samstarfi við Ömmu Habbý, en þá spiluðu Eggert og Michelle Nielsson ásamt Skunda litla á loftinu hjá okkur. Seinna um kvöldið færðu menn sig niður á Ömmu Habbý og héldu áfram fram á nótt. Það var gaman að sjá fólk á ferli í bænum þessa hlýju júlínótt.
Hinn einstaki Svavar Knútur kom líka í júlí og spilaði á loftinu hjá okkur í heila kvöldstund. Var hrein unun að eiga þessa samverustund með þessum einlæga listamanni og mátti sjá tár á hvörmum gesta.

Í byrjun ágúst steig á stokk Skúli mennski, hið djúpraddaða söngvaskáld, með kaldhæðnislega texta úr daglega lífinu. Sjálfur Mugison hitaði upp fyrir drenginn og Rúna okkar Esra tók með honum nokkur lög, svona rétt til að hita upp fyrir menningarnóttina í Reykjavík þar sem parið sló í gegn á sviðinu.
Menningarnóttina héldum við upp á með hópi trúbadora sem hélt ólympíuleika á loftinu hjá okkur.


Daniel, hinn syngjandi breti kom tvisvar við hjá okkur í ágúst, á ferðum sínum hringinn í kringum landið til styrktar Ljósinu og fleiri góðum málefnum.

...
Meira
Vefumsjón