Atburðir

Mikki og melrakkarnir

Sýningin Mikki og melrakkarnir er sýnd á loftinu á laugardögum í sumar. Þær Alda Marín Ómarsdóttir og Mekkín Silfá Karlsdóttir hafa aldeilis slegið í gegn í hlutverkum Mikka og melrakkanna. Leikstórn er í höndum Elfars Loga Hannessonar en hann, ásamt Ástu Þórisdóttur og Ester Unnsteinsdóttur sömdu handritið. Leikmynd og brúður eru eftir Ástu Þórisdóttur og Lilju á Drangsnesi.

Sýningar á Mikka og melrökkunum verða alla laugardaga í setrinu kl.16.00 í sumar (nema 7. júlí en þá fara þeir félagar í heimsókn á sæluhelgina á Suðureyri).

Ekki láta þetta fram hjá ykkur fara og hringið í síma 456-4922 og tryggið ykkur miða sem fyrst. Miðaverð er 1.500,- kr. og er 50% systkinaafsláttur.

Vefumsjón