Atburðir

Mikki og melrakkarnir

Sýningin Mikki og melrakkarnir er sýnd á loftinu á laugardögum í sumar. Þær Alda Marín Ómarsdóttir og Mekkín Silfá Karlsdóttir hafa aldeilis slegið í gegn í hlutverkum Mikka og melrakkanna. Leikstórn er í höndum Elfars Loga Hannessonar en hann, ásamt Ástu Þórisdóttur og Ester Unnsteinsdóttur sömdu handritið. Leikmynd og brúður eru eftir Ástu Þórisdóttur og Lilju á Drangsnesi.

Sýningar á Mikka og melrökkunum verða alla laugardaga í setrinu kl.16.00 í sumar (nema 7. júlí en þá fara þeir félagar í heimsókn á sæluhelgina á Suðureyri).

Ekki láta þetta fram hjá ykkur fara og hringið í síma 456-4922 og tryggið ykkur miða sem fyrst. Miðaverð er 1.500,- kr. og er 50% systkinaafsláttur.

Harmonikkutónar

Harmonikkusnillingarnir Baldur, Villi Valli og Magnús Reynir munu koma og spila fyrir okkur frábæra tónlist.
Fjörið hefst kl.21:00 og verður opið fram eftir kvöldi.

komið og syngið með !! 

Mikki og melrakkarnir

Frumsýning á brúðuleikhúsinu Mikki og melrakkarnir - í fyrsta sinn á Íslandi !!

Komið og sjáið brúðuleikritið Mikka og melrakkana en Menningarráð Vestfjarða veitti styrk til sýningarinnar. Sviðsmynd og brúður eru eftir Lilju Sigrúnu Jónsdóttur og Ástu Þórisdóttur, leikbrúðusmiða á Drangsnesi en handrit er unnið af Ástu Þórisdóttur, Ester Rut Unnsteinsdóttur og Elfari Loga Hannessyni. Leikarar eru þær Alda Marín Ómarsdóttir og Mekkín Silfá Karlsdóttir. Leikstjórn er í höndum Elfars Loga. Brúðuleikritið verður sýnt kl. 16 á laugardögum í sumar.

Aðgangseyrir er kr. 1.500,- og veittur er 50% systkina afsláttur - miðapantanir eru í síma 456 4922

Afmæli Melrakkaseturs

Móri undirbýr eins árs afmælið 2011
Móri undirbýr eins árs afmælið 2011
Melrakkasetrið í Súðavík heldur upp á tveggja ára opnunarafmæli á sunnudaginn, þann 10. júní !!

Í tilefni dagsins verður opið hús frá kl. 13 - 18

 

Gamla bakaríið býður upp á afmælistertu
Sumardrykkurinn Mix er í boði Ölgerðarinnar
Ís í boði Kjörís
Lifandi tónlist á loftinu - The Cutaways
Listasýning og handverk frá Art Vest
Andlitsmálun - allir vilja verða rebbar
Búið til ykkar eigin nælu með Ninu
Mikki og melrakkarnir mæta á svæðið
Fáum okkur pylsur


Verið velkomin

Fh. Melrakkaseturs
Móri melrakki


"Allir eru melrakkar í hjarta sínu" 

Vefumsjón